Fara í efni

Varað við neyslu á kræklingi úr Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði í sumar vegna eiturþörunga í firðinum og greiningar DSP þörungaeiturs yfir viðmiðunarmörkum í kræklingi.

Fulltrúar Matvælastofnunar söfnuðu kræklingi 11 júní sl. við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna hvort almenningi sé óhætt að tína krækling í Hvalfirði. Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur er enn yfir viðmiðunarmörkum í kræklingi þó magnið hafi lækkað nokkuð frá síðustu mælingum.

Tínsla á kræklingi í Hvalfirði

DSP greindist yfir mörkum í sýnum sem tekin voru í byrjun apríl og í maí. Vöktun á eiturþörungum sýnir að Dynophysis þörungurinn sem veldur DSP eitrun er einnig yfir viðmiðunarmörkum og því má búast við DSP eitur verði viðvarandi í kræklingi í Hvalfirði í sumar. 

DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu og líða hjá á nokkrum dögum. 

Neytendur hafa ekki ástæðu til að varast krækling (bláskel) sem ræktaður er hérlendis og er á markaði í verslunum og veitingahúsum. Innlend framleiðsla á kræklingi er undir eftirliti Matvælastofnunar. Reglulega eru tekin sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur. 

Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á öðrum landssvæðum má nálgast hér að neðan. 

Ítarefni

Frétt uppfærð 15.06.18 kl. 14:54


Getum við bætt efni síðunnar?