Fara í efni

Varað við fæðubótarefnum fyrir vaxtarræktarfólk

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu í gegnum RASFF hraðviðvörðunarkerfi Evrópu og alþjóðlega viðvörunarkerfið  Infosan um ýmis fæðubótarefni sem varað er við vegna innihaldsefnisins  1,3-dimethylamylamine eða DMAA. Fjölmörg alvarleg tilfelli í heiminum hafa átt sér stað eftir neyslu slíkra fæðubótarefna. Í apríl fór m.a. ungur Svíi í hjartastopp í 15 mínútur en var endurlífgaður en hann hafði verið að neyta eitt af neðantöldum fæðubótarefnum.

Þekktar aukaverkanir: Hár þlóðþrýstingur, ógleði/uppköst, heilablæðing, blóðtappi og dauði. 


Fæðubótarefni sem ber að varast:


  • Jack3D
  • Oxy Elite Pro
  • BSN Endoburn NT og 
  • 1.M.R Powder
  • HemoRage Black
  • Lean Efx
  • Lipo-6 Black
  • Lipo-6 Black Hers
  • Lipo-6 Black Ultra Concentrate
  • Methylhex 4,2
  • Napalm
  • Spirodex
  • Beta-Cret
  • PreSurge
  • 1 MR
  • Cyroshock
  • Mesomorph
  • Neurocore
  • Oxyelite powder


Matvælastofnun, í samstarfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, vinnur að því að kanna hvort þessar vörur séu á markaði hér á landi en netverslanir hafa haft sumar þeirra til sölu.


Ítarefni



Getum við bætt efni síðunnar?