Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í frostpinnum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að Kaupás hafi, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, stöðvað sölu og innkallað af markaði eftirfarandi matvæli:

    Vörumerki:  Allra.
Vöruheiti:  Grænir frostpinnar.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd fyrir Kaupás hf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík, af Emmessís ehf., Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Frostpinnarnir innihalda ómerktan ofnæmis- og óþolsvald (afurð úr soja (sojalesitín)).  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir á umbúðum matvæla.  Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við merkingar vörunnar.

Laga- /reglugerðarákvæði:  13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, sbr. og viðauka við reglugerð nr. 631/2010 um breytingu á reglugerð nr. 503/2005.  5. gr., 7. tl. 6. gr., b-liður 11. gr. reglugerðar nr. 503/2005.  Viðauki V við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum, með síðari breytingum (innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 978/2011).  Reglugerð nr. 798/2002 um kakó- og súkkulaðivörur.  8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Kaupáss hf. um land allt (Krónan, Nóatún, Kjarval).


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?