Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í ostaköku

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar um innköllun á ostaköku vegna vanmerktrar ofnæmis- og óþolsvalda. Ostakakan inniheldur ómerkta ofnæmis- og óþolsvalda (hnetur (möndlur), egg, afurð úr soja (sojalesitín) og afurð úr mjólk (smjör)).

  Vöruheiti:  Krónan ostakaka með eplum og karamellusósu.  
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd fyrir Krónuna, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Ostakakan inniheldur ómerkta ofnæmis- og óþolsvalda (hnetur (möndlur), egg, afurð úr soja (sojalesitín) og afurð úr mjólk (smjör)).  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir á umbúðum matvæla.  Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við merkingar vörunnar.
 
Laga- /reglugerðarákvæði:
 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, sbr. og viðauka við reglugerð nr. 631/2010 um breytingu á reglugerð nr. 503/2005.  7. tl. 6. gr., b-liður 11. gr., 12. gr., 14. gr reglugerðar nr. 503/2005.  9. gr. reglugerðar nr. 410/2009 um merkingu næringargildis matvæla, með síðari breytingum.  8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Krónunnar um land allt.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?