Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í cantuccini

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur stöðvað sölu og innkallað af markaði eftirfarandi matvæli: 


Vörumerki:  Il Balestro. 
Vöruheiti:  Cantuccini al Cioccolato. 
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Le Logge srl á Ítalíu.  Varan er flutt inn til Íslands og dreift af Aðföngum, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Cantuccini al Cioccolato inniheldur aukefnið E 322 (lesitín) án þess að uppruni þess komi fram á umbúðum vörunnar.  Samkvæmt upplýsingum frá Aðföngum er uppruni lesitínsins úr soja.  Sojabaunir og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Ofnæmis- og óþolsvaldar eiga að vera skýrt merktir á umbúðum matvæla.
Laga- /reglugerðarákvæði:  13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, sbr. og viðauka við reglugerð nr. 631/2010 um breytingu á reglugerð nr. 503/2005.  8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Hagkaupa um land allt.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?