Úttekt ESA á opinberu eftirliti með hollustuháttum fóðurs dýra sem ætluð eru til manneldis
Tilgangur úttektarinnar var að staðfesta að opinbert eftirlit með dýrafóðri sé í samræmi við gildandi löggjöf EES og hefur skýrslan verið birt á heimasíðu Eftirlitsstofnunar EFTA. Helstu niðurstöður eru þær að Ísland hefur komið á fót eftirlitskerfi til að skipuleggja og framkvæma opinbert eftirlit hjá leyfisskyldum framleiðendum fóðurs fyrir dýr sem ætluð eru til manneldis. Eftirlitið er áhættumiðað og felur m.a. í sér opinberar sýnatökur og prófanir til að sannreyna samsetningu fóðurs.
Úttektin leiddi í ljós að sýnatökur voru ekki alltaf framkvæmdar á fullnægjandi hátt sem getur grafið undan skilvirkni eftirlitsins. Eftirlitskerfið nær ekki til matvælafyrirtækja sem afsetja matvæli til fóðurframleiðslu, t.d. bakarí og brugghús (matvæli án dýraafurða). Hugsanlega er að fóður frá slíkum framleiðendum uppfylli ekki viðeigandi kröfur.
Niðurstöður ESA eru settar fram í lokaskýrslu ásamt tímasettri úrbótaáætlun Matvælastofnunar en úrbætur eru þegar hafnar og sumum lokið.