Fara í efni

Úttekt á fyrirtækjum í viðskiptum við tollabandalag Evrasíu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Til stendur að hefja sérstakar úttektir hérlendis hjá fyrirtækjum sem vilja stunda viðskipti með dýraafurðir á markaðssvæði Eurasian Economic Union, þ.e.tollabandalags Rússlands, Hvíta Rússlands, Khasakstan, Armeníu og Kirgistans. Matvælastofnun hefur það hlutverk að gera úttektir á starfsstöðvum sem hafa leyfi til að stunda viðskipti með dýraafurðir á markaðssvæði tollabandalagsins til að tryggja að þær uppfylli reglur tollabandalagsins.

Þær kröfur sem tollabandalagið gerir til fyrirtækja sem flytja matvæli til fyrrnefndra landa eru ekki að öllu leyti þær sömu og Matvælastofnun tekur út í reglubundnu eftirliti sínu skv. lögum nr. 93/1995 um matvæli. Úttektir með sértækum kröfum tollabandalagsins koma því til viðbótar við reglubundið eftirlit stofnunarinnar.

Fyrirtækjum er í sjálfsvald sett hvort þau vilja undirgangast þessar sértæku kröfur tollabandalagsins og úttektir Matvælastofnunar til að staðfesta að þær séu uppfylltar. Ljóst er að nokkur kostnaður fellur til við þessar úttektir sem greiðist af hlutaðeigandi fyrirtækjum. Kostnaður við úttektir og önnur verkefni ræðst af stærð starfsstöðva, eðli starfsemi, hversu vel starfsstöðvar uppfylla sértækar kröfur o.s.frv.

Til stendur að hefja úttektir hjá þeim starfsstöðvum sem eru á lista tollabandalagsins á þessu ári og að búið verði að ljúka úttektum hjá öllum starfsstöðvum fyrir árslok 2021. Nauðsynlegt er að forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem vilja fá úttekt staðfesti slíkt með því að fylla út eyðublað þess efnis í þjónustugátt Matvælastofnunar.

Úttektirnar mun Matvælastofnun skipuleggja í samvinnu við hlutaðeigandi fyrirtæki. Matvælastofnun ábyrgist ekki að heimild fáist til útflutnings á markaðssvæði tollabandalagsins, endanleg ákvörðun um slíkt er í höndum fulltrúa tollabandalagsins.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum og athugasemdum til jag@mast.is eða 530-4800.


Getum við bætt efni síðunnar?