Fara í efni

Úttekt á eftirliti Matvælastofnunar með sjávarafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Úttekt Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) síðla í októbermánuði leiddi í ljós umtalsverðar framfarir í opinberu eftirliti með sjávarafurðum á Íslandi. Að mestu leyti hafði verið brugðist við athugasemdum í skýrslu sem ESA gaf út eftir hliðstæða úttekt á árinu 2010.

Þetta kemur fram í frétt ESA sem birt var í dag, ásamt skýrslu um helstu niðurstöður úttektarinnar. Skv. ESA hefur Matvælastofnun sett upp eftirlitskerfi í samræmi við löggjöf Evrópska Efnahagsvæðisins (EES). Til að styrkja framkvæmd íslenskrar löggjafar og til frekari leiðsagnar hafa jafnframt verið gefin út fyrirmæli og leiðbeiningar.

Annmarka varð vart á eftirfarandi sviðum þótt almennt sé framkvæmd fullnægjandi:

  • Í einstaka tilvikum var viðurkenning á starfstöðvum ekki í fullu samræmi við EES löggjöf
  • Dæmi voru um að Matvælastofnun treysti eingöngu á innra eftirlit framleiðanda þar sem opinbers eftirlits er krafist, t.d.við töku vatnssýna á vinnslusvæðum
  • Hefðbundið verklag við þurrkun á fiski utandyra hafði ekki verið tilkynnt formlega til ESA

Matvælastofnun hefur tekið athugasemdirnar sem settar eru fram í skýrslu ESA til greina og lagt fram tímasetta aðgerðaráætlun sem nú er til skoðunar hjá ESA. Áætlunin og athugasemdir íslenskra stjórnvalda koma fram í viðauka skýrslunnar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?