Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Benchmark Genetics Iceland hr. í Vogum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Benchmark Genetics Iceland hf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Vogavík í Vogum. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 8. nóvember 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 6. desember 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 500 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á laxi í Vogavík í Vogum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 23. október 2020. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?