Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis til Laxa vegna fiskeldis í Reyðarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Löxum eignarhaldsfélagi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Reyðarfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 2. júlí 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 4. ágúst 2020.

Laxar eignarhaldsfélag sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði. Fyrirtækið er fyrir með annars vegar 6.000 tonna rekstrarleyfi og hins vegar 3.000 tonna rekstrarleyfi  fyrir sjókvíeldi á laxi í Reyðarfirði. Umsókn um rekstrarleyfi var móttekin 3. október 2017 og mun 3.000 tonna leyfið falla inn í þau 10.000 tonn sem hér eru til umfjöllunar. Fyrirtækið hyggst því ala 16.000 tonn af laxi á tveimur aðskildum rekstrarleyfum.

Hámarkslífmassi eldisins vegna rekstrarleyfis FE-1152 í Reyðarfirði mun ekki fara yfir 10.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat Reyðarfjarðar. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknastofnunar við útgáfu rekstrarleyfisins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?