Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfa til fiskeldis í Patreks- og Tálknafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm og Fjarðalaxi rekstrarleyfi til fiskeldis í Patreks- og Tálknafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Samanlögð árleg framleiðsla fyrirtækjanna tveggja verður 17.500 tonn af laxi. Fjarðalaxi er heimilt að framleiða allt að 10.700 tonn á ári og Arctic Sea Farm 6.800 tonn. Hámarkslífmassi eldisins mun ekki fara yfir 20.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat fjarðanna. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækjanna fór í gegnum sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu fyrrnefndra rekstrarleyfa til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar fréttar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?