Útgáfa á rekstrarleyfi Samherja fiskeldis ehf. vegna landeldis í Eldisgarðinum, Reykjanesi
Matvælastofnun hefur veitt Samherja fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á landi í Eldisgarðinum á Reykjanesi. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi með allt að 20.000 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á laxi, bleikju og regnbogasilungi.
Samherji fiskeldi ehf. sótti um rekstrarleyfi fyrir 20.000 tonna hámarkslífmassa þann 10. febrúar 2023. Tillaga að leyfinu var auglýst á tímabilinu 2. júní til og með 1. júlí og barst Matvælastofnun engin athugasemd vegna hennar á þeim tíma. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
Ítarefni