Fara í efni

Útgáfa á breyttu leyfi Arctic Sea Farm hf. Arnarfirði

Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. í Arnarfirði. Um er að ræða breytingu á seiðastærð þar sem rekstraraðila verður heimilt að setja út 60g seiði í stað 120g seiða.

Tillaga að breytingunni var auglýst á tímabilinu 14. janúar til og með 12. febrúar og bárust athugasemdir frá þremur aðilum. Gerð er grein fyrir þeim í greinargerð sem fylgir útgáfu á breytingunni.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni

Rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. Arnarfirði

Greinargerð Matvælastofnunar

Athugasemdir


Getum við bætt efni síðunnar?