Umsóknir um leyfi til að selja líflömb 2011
Frétt -
18.03.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
![]() |
|
Sauðfjárbændur sem ætla
að sækja um nýtt leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega
umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2011 á eyðublöðum sem
finna má á vef MAST eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá
þau send. Sauðfjárbóndi sem nú þegar hefur fengið söluleyfi heldur því milli ára án umsóknar, svo lengi sem hann uppfyllir skilyrði reglugerðarinnar. Tilkynna þarf Matvælastofnun ef óskað er að söluleyfi verði fellt niður og mun stofnunin þá taka nafn búsins af lista yfir bú sem hafa leyfi til að selja líflömb árið 2011. |
Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Býli sauðfjárbónda er á líflambasölusvæði, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.
- Eðlilegur fjöldi fullorðins fjár skal hafa verið sendur frá býli sauðfjárbónda í sláturhús eða hausum skilað inn til sýnatöku vegna riðuveiki undanfarin ár.
- Sauðfjárbóndi skal uppfylla ákvæði reglugerða um aðbúnað, fóðrun og merkingar búfjár.
- Sauðfjárbóndi skal hafa haldið fullnægjandi skráningar á viðskiptum með búfé og skráningar á sjúkdómum og lyfjanotkun í fé undanfarin ár.
- Nautgripir skulu ekki hafa verið fluttir á bæinn frá bæjum utan sóttvarnarsvæðis nema með leyfi héraðsdýralæknis.
- Smitvarnir á bænum skulu vera fullnægjandi.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafsson, sérgreinadýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma, í síma 530-4800.
Ítarefni