Um kartöfluútsæði
Þar sem nú fer að líða að þeim tíma að fólk fer að huga að kartöfluræktun sumarsins vill Matvælastofnun benda á að kartöfluútsæði sem er til sölu á að vera frá ræktendum sem starfa undir eftirliti stofnunarinnar. Markmið eftirlitsins er að koma í veg fyrir að alvarlegir kartöflusjúkdómar og meindýr dreifist og valdi tjóni í ræktuninni.
Matarkartöflur sæta ekki sama eftirliti og útsæði og þurfa ekki að uppfylla sömu heilbrigðiskröfur hvað varðar plöntusjúkdóma. Af þeim sökum er ekki ráðlagt að nota matarkartöflur sem útsæði.
Í smásölu skal útsæðið haft aðskilið frá matarkartöflum og skal tilgreina á tryggilegan hátt að um kartöfluútsæði sé að ræða.
Matvælastofnum birtir á heimasíðu sinni lista yfir þá ræktendur er hafa leyfi til þess að afhenda innlent kartöfluútsæði á almennan markað.
Erlent útsæði er flutt inn til landsins með samþykktu plöntuheilbrigðisvottorði sem uppfyllir kröfur reglugerða sem settar eru með stoð í lögum nr. 52/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum.