Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Veiðifélags Ytri-Rangár til fiskeldis að Laxeyri á Húsafellslandi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Veiðifélag Ytri-Rangár vegna seiðaeldis að Laxeyri á Húsafellslandi í Borgarbyggð. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 40 tonn af laxi.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. desember 2021

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?