Tillaga að rekstrarleyfi til fiskeldis að Kjarvalsstöðum í Hjaltadal
Frétt -
05.10.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Ögg ehf. vegna fiskeldis á landi að Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í Hjaltadal. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 12 tonn af bleikju, seiða- og matfiskeldi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. nóvember 2020.