Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldis að Sigtúni í Öxarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Sigtúni í Öxarfirði. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 11 tonn af bleikju, klakfisk- og seiðaeldi.

Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 20. júní 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?