Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Laxa fiskeldis í Ölfusi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxa fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Fiskalóni í Ölfusi. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 100 tonn af laxaseiðum til áframeldis. Áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi (FE-1120) fyrir 20 tonna seiða- og matfiskeldi á laxi og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. desember 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?