Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Laxa eignarhaldsfélags til fiskeldis í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxa eignarhaldsfélag ehf. vegna fiskeldis að Laxabraut 9 -11 í Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 2.500 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á laxi. Áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi fyrir 500 tonna eldi á laxaseiðum.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum i samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. október 2021.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?