Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Háafells til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Háafell ehf. til sjókvíaeldis á laxi og ófrjóum laxi í Ísafjarðardjúpi. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2020 um eldi á 6.800 tonnum af laxi í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða rekstrarleyfi Háafells ehf. sem heimila hámarkslífmassa fyrir samtals 6.800 tonn af laxi og ófrjóum laxi á hverjum tíma. Samkvæmt 10. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi ber Matvælastofnun að gefa út aðskilin rekstrarleyfi fyrir lax og ófrjóan lax þegar umsóknaraðili hyggst vera með eldi á bæði frjóum og ófrjóum laxi.

Fyrir hefur Háafell rekstrarleyfi FE-1106 í Ísafjarðardjúpi sem heimilar hámarkslífmassa fyrir 7.000 tonn, þar af 6.800 tonn af regnbogasilungi og 200 tonn af þorski. Verði tillaga að 6.800 tonna rekstrarleyfum gefin út þá kemur það í stað rekstrarleyfis Háafells (FE-1106) til sjókvíeldis á regnbogasilungi og þorski.

Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar gerir ráð fyrir 30.000 tonna hámarkslífmassa í Ísafjarðardjúpi og áhættumat erfðablöndunar heimilar 12.000 tonn af frjóum laxi á hverjum tíma.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. apríl 2021.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?