Tillaga að rekstrarleyfi Arnarlax til fiskeldis í Þorlákshöfn
Frétt -
11.02.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Arnarlax hf. vegna fiskeldis að Laxabraut 5 í Þorlákshöfn. Um er að ræða breytingu á núverandi rekstrarleyfi fyrir 900 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á laxi og bleikju. Áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi fyrir 900 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á bleikju.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. mars 2022.