Tillaga að endurnýjun rekstrarleyfis Rifós í Kelduhverfi
Frétt -
10.10.2022
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi Rifós hf. vegna fiskeldis á landi við Lónin í Kelduhverfi. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 600 tonn af laxi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31. október 2022.
Ítarefni