Fara í efni

Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýsa eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, og nýtur framlaga frá heilbrigðisráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu samtals 30 milljónir kr. á ári í þrjú ár, þ.e. til ársloka 2022. 

Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.

  1. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til grunnrannsókna í sýklalyfjaónæmi. 
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram: Markmið verkefnis, fjárhæð sem sótt er um í sjóðinn, framkvæmda- og kostnaðaráætlun, áætlun um nýtingu fjármagns sem sótt er um, rannsóknarleyfi og hvernig nýta megi niðurstöður til að draga úr sýklalyfjaónæmi. Sótt skal um í nafni einstaklings, stofnunar eða starfseiningar.
    • Úthlutanir sjóðsins eru tvisvar á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. ágúst 2020.
  2. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna tilteknar skimanir fyrir ónæmum sýklum.
    • Til nánari skýringa verða einungis fjármagnaðar skimanir sem eru umfram lögbundnar skimanir, t.d. tilteknar skimanir í matvælum, sauðfé, hrossum, gæludýrum, sníkjudýrum og umhverfi.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram skimunar- og kostnaðaráætlun og rökstuðningur fyrir mikilvægi verkefnisins.
    • Úthlutanir sjóðsins eru einu sinni á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. ágúst 2020.
  3. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna umframkostnað vegna rannsókna í almannaþágu í því skyni að rekja uppruna sýkla sem dreifast á milli manna og dýra (súnur) í þeim tilvikum þegar upp koma hrinur, hópsýkingar eða faraldrar. 
    • Umsóknir geta borist sjóðnum allt árið um kring og verða umsóknir teknar til umfjöllunar á fundi sjóðsstjórnar í kjölfar þess að þær berast.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram lýsing á atburðinum og rannsóknaáætlanir viðkomandi stofnana auk frumrits reikninga vegna rannsókna sem áritaðir eru af yfirdýralækni eða sóttvarnalækni.
    • Úthlutanir sjóðsins eru eftir þörfum.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðinn, starfsreglur og úthlutunarreglur. 

Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni: https://minarsidur.stjr.is


Getum við bætt efni síðunnar?