Fara í efni

Sýklalyfjanotkun og -ónæmi 2017

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Sýklalyfjanotkun í mönnum hefur aukist milli ára á Íslandi en lítið er um sýklalyfjaónæmi og sýklalyfjanotkun í dýrum hér á landi borið saman við önnur Evrópulönd. Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu um sýklalyfjanotkun og algengi sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi í mönnum, dýrum og afurðum dýra á árinu 2017. Skýrslan er samstarfsverkefni Matvælastofnunar, sóttvarnalæknis, sýklafræðideildar Landspítala og Lyfjastofnunar.

Í skýrslunni kemur fram að sýklalyfjanotkun hjá mönnum jókst um rúmlega 3% á árinu 2017 miðað við 2016 en sýklalyfjanotkun hjá dýrum var áfram ein sú minnsta hér á landi miðað við önnur Evrópulönd.

Sýklalyfjaónæmi er áfram fremur lágt á Íslandi miðað við nágrannaþjóðir og var það að mestu óbreytt borið saman við árið 2016.

Í apríl 2017 skilaði starfshópur heilbrigðisráðherra skýrslu um aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Starfshópurinn lagði fram 10 tillögur sem nauðsynlegar eru í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Þar á meðal voru tillögur um hvernig hægt er að draga úr sýklalyfjanotkun hjá mönnum og mælt með eftirliti á sýklalyfjaónæmum bakteríum í erlendum og innlendum matvælum.

Á árinu 2018 hófst vinna með læknum sem miðar að því að efla vitund lækna um bættar ávísanavenjur sýklalyfja sem vonandi mun leiða til minnkandi notkunar. Einnig var aukið eftirlit með sýklalyfjaónæmum bakteríum í matvælum og rannsóknir á eðli dreifingar sýklalyfjaónæmis efldar. Vonandi munu allir þessir þættir reynast gagnlegir í baráttunni við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería sem álitin er vera ein helsta heilbrigðisógn samtímans.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?