Fara í efni

Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst 2025

Heildarsala sýklalyfja fyrir dýr jókst um 21,4% frá fyrra ári. Aukningin skýrist meðal annars af áframhaldandi sýklalyfjameðferð vegna kýlaveikibróðurs í landeldi á bleikju, en sala sýklalyfja til annarra dýrategunda jókst einnig. Sýklalyfjanotkun vegna kýlaveikibróðurs í bleikjueldi hefur nú verið viðvarandi um nokkurra ára skeið og á áfram stóran þátt í heildarsölu sýklalyfja hjá dýrum á Íslandi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast áfram með þróun sýklalyfjanotkunar hjá einstökum dýrategundum og stuðla að ábyrgri og markvissri notkun sýklalyfja.

Önnur mikilvæg niðurstaða ársins var að búfjártengdur meticillínónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA) greindist í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum. Bakterían fannst í fjórum nátengdum svínabúum. Búfjártengdur MÓSA er vel þekktur í svínarækt í Evrópu en hafði ekki áður greinst í íslenskum svínum og sýnir mikilvægi skimunar.

Vöktun á sýklalyfjaónæmi í bakteríum úr dýrum og matvælum sýnir að staðan á Íslandi er að öðru leyti almennt góð í samanburði við mörg Evrópulönd. Ónæmi fyrir cíprófloxacíni er þó áfram algengt í Campylobacter coli í svínum hérlendis og mældust 71,8% þeirra stofna sem voru ónæmisprófaðir árið 2025 ónæmir fyrir lyfinu. Niðurstöður ársins sýna jafnframt mikilvægi þess að halda áfram reglubundinni vöktun og fylgjast með breytingum á sýklalyfjaónæmi og sýklalyfjanotkun.

Heildarsala sýklalyfja hjá mönnum var 18,6 skilgreindir dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag (DID) og dróst saman um 4,6% frá fyrra ári. Sýklalyfjaónæmi er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði, en þróun ákveðinna gerða ónæmis veldur áhyggjum. Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE), fleiri en nokkru sinni áður á einu ári.

Ársskýrslan er unnin út frá Einnar heilsu nálgun og tekur saman upplýsingar um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi hjá mönnum og dýrum auk upplýsinga um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi í umhverfi. Slík heilstæð vöktun er mikilvæg þar sem sýklalyfjaónæmi tengir saman heilbrigði manna og dýra og umhverfið.

Sjá nánar:
Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi 2025

https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3L3Ms5XmcrsO2idOH7IVr6/9a40835d3e73caa756995f8e57d0429e/a01d9c74-47ba-4d5d-afc9-ff1bebb7cd3b.pdf 

Fréttatilkynning SVL

https://island.is/s/landlaeknir/frett/arsskyrsla-um-syklalyfjanotkun-og-syklalyfjanaemi-bakteria-hja-moennum-og-dyrum-a-islandi-2025 


Getum við bætt efni síðunnar?