Fara í efni

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir styrki til lífrænna framleiðenda

Sjá frétt á vef Stjórnarráðsins Stjórnarráðið | Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

Lífræn ræktun er aðferð til landbúnaðarframleiðslu sem stefnir að því að framleiða hráefni í matinn okkar með náttúrulegum efnum og aðferðum með virðingu fyrir vistkerfum og dýravelferð að leiðarljósi. Það er mælt fyrir um ítarlegar lágmarkskröfur í reglugerðum og fela þær í sér að lífræn ræktun þarf að vera fjölhæf starfsemi þar sem notaðar eru náttúrulegar endurnýjanlegar auðlindir svo sem húsdýraáburður, skiptiræktun, belgjurtir og fóðurjurtir sem stuðla að bættri frjósemi jarðvegs og viðhalda til lengri tíma.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér einnig Aðgerðaáætlun Matvælaráðuneytisins frá 2024 um eflingu lífrænnar matvælafremleiðslu sem hægt er að nálgast á vef stjórnarráðsins. Stjórnarráðið | Efling lífrænnar matvælaframleiðslu - Aðgerðaáætlun 

Nánari upplýsingar: 


Getum við bætt efni síðunnar?