Fara í efni

Stuðningur við nýliðun í mjólkurframleiðslu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun, búnaðarstofa, hefur lokið yfirferð umsókna sem bárust um styrk vegna nýliðunar í mjólkurframleiðslu. Við yfirferð umsókna er farið eftir samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu dags. 10. maí 2004, með síðari breytingum og reglugerð nr. 1220/2015, VIÐAUKA 5, (Verklagsreglur um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu).

Árið 2016 bárust 16 umsóknir, ein umsókn var dregin til baka og þrjár uppfylltu ekki tilskilin skilyrði.

Til úthlutunar voru kr. 27.500.000 sem skiptast samkvæmt reiknireglum um úthlutun framlaga skv. 4. gr.  fyrrnefndrar reglugerðar og verður 90% samþykkts framlags greitt fyrir áramót og lokagreiðsla greidd í janúar 2017 þegar fjöldi árskúa ársins 2016 liggur fyrir. Með nýjum búvörusamningum breytast nýliðunarstyrkir í landbúnaði og verða almennir fyrir allar búgreinar, en ekki sérstakir nýliðunarstyrkir í mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt eins og var í fyrri búvörusamningi. Reglugerð um almennan stuðning í landbúnaði, sem verður gefin út fyrir áramót, tilgreinir með hvaða hætti verður staðið að úthlutun samkvæmt nýjum reglum.


Getum við bætt efni síðunnar?