Strok bleikju úr landeldisstöð
Frétt -
14.04.2026
Matorka ehf. tilkynnti Matvælastofnun um strok bleikju úr eldisstöð sinni að Húsatóftum við Grindavík laugardagmorguninn 11. apríl 2026. Fiskurinn var um 600 gr. að meðalþyngd og telur fyrirtækið að um 500 fiskar hafi strokið.
Fyrirtækið virkjaði strax viðbragðsáætlun vegna stroks. Rist á útfalli kers mun hafa gefið sig vegna tæringar með þeim afleiðingum að fiskur komst með útfalli í sjó fram. Viðgerð var framkvæmd strax og gerðar ráðstafanir til þess að skoða ástand annarra kerja.
Fyrirtækið telur ekki miklar líkur á að bleikjan sem strauk hafi getað lifað í fullsöltum sjó. Matvælastofnun vinnur að rannsókn málsins og mun gefa út eftirlitsskýrslu þegar rannsókn er lokið.