Fara í efni

Strok bleikju úr landeldisstöð

Matvælastofnun barst nafnlaus ábending föstudaginn 9. janúar 2026 um dauð og hálfdauð bleikjuseiði í Tálknafjarðarhöfn.

Við eftirgrennslan Matvælastofnunar kom í ljós að atburður hafði átt sér stað hjá Tungusilungi 30. desember 2025 sem varð þess valdandi að það flæddi yfir í keri, sem staðsett er niður í fjöru skammt frá Tálknafjarðarhöfn, með þeim afleiðingum að eldisfiskur komst út í sjó.

Samkvæmt upplýsingum frá rekstrarleyfishafa voru um 27.000 fiskar í þessu keri og að hans mati hafi nokkrir tugir farið úr kerinu, en ekki verður hægt að fullyrða um fjölda fyrr en búið er að tæma kerið sem verður gert á næstu vikum. Rekstraraðili telur að flestir ef ekki allir fiskarnir sem farið hafi úr kerinu hafi verið dauðir eða laskaðir.

Meðalþyngd fiska í þessu keri er um 35 gr. Rekstrarleyfishafi virkjaði ekki viðbragðsáætlun vegna stroks. Matvælastofnun vinnur að rannsókn málsins og mun gefa út skýrslu þegar rannsókn er lokið.


Getum við bætt efni síðunnar?