Stjórnvaldsákvarðanir Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum o.fl. í ágúst, september og október 2025
Brotið á velferð hunds – stjórnvaldssekt
Einstaklingur sem hafði tímabundin umráð yfir hundtík var sektaður um 240.000 kr. fyrir að kippa í taum, traðka með fæti á höfði og sparka að lokum ítrekað í vinstri síðu og búk á tíkinni. Eigandinn féllst á að hundinum væri komið í hendur annarra.
Vörslusvipting á hundi
Umráðamaður hunds var sviptur vörslum á hundinum þar sem hundurinn var illa hirtur og aðstæður á heimili hans ekki ásættanlegar, auk þess sem hundinum var haldið inni. Hundinum var ráðstafað á nýtt heimili.
Brot á lögum um innflutning dýra
Lögregla fjarlægði snák af heimili manns að beiðni Matvælastofnunar. Í framhaldinu kærði stofnunin manninn til lögreglu enda hafði Matvælastofnun ekki heimilað innflutning á dýrinu.
Vörslusvipting á hundum
Umráðamaður tveggja hunda taldist ekki uppfylla skilyrði dýravelferðarlaga um getu, hæfni og ábyrgð. Aðbúnaður hundanna var ófullnægjandi. Hann var sviptur vörslum þeirra og hundunum komið til annarra.
Brotið á velferð hunds - stjórnvaldssekt
Umráðamaður hunds var sektaður um 270.000 kr. fyrir að draga fram úr hófi að fara með hann til dýralæknis. Hundurinn var að lokum aflífaður.
Brotið á velferð kattar - stjórnvaldssekt
Umráðamaður var sektaður um 195.000 kr. fyrir að hafa brotið á velferð kattar með vanfóðrun hans, skorti á brynningu og ófullnægjandi almennum aðbúnaði. Áður hafði Matvælastofnun svipt umráðamanninn vörslum kattarins og komið honum í hendur annarra.
Brotið á velferð nautgripa. Stjórnvaldssekt
Nautgripabóndi var sektaður um 520.000 kr. fyrir að brjóta á velferð nautgripa með vanfóðrun þeirra, skorti á brynningu og að draga of lengi að sjá til þess að sjúk eða slösuð dýr fengju tilhlýðilega lækningu eða yrðu aflífuð.
Bóndi sviptur vörslum alls sauðfjár
Sauðfjárbóndi var sviptur vörslum bústofns síns þar sem hann taldist skorta bæði getu, hæfni og ábyrgð til að halda féð. Um var að ræða alvarleg brot á velferð fjárins. Féð var sent í sláturhús.
Vörslusvipting á hundi
Umráðamaður hunds var sviptur vörslum hans í ágúst vegna ófullnægjandi aðbúnaðar. Umráðamaðurinn kærði vörslusviptinguna til atvinnuvegaráðuneytis sem staðfesti vörslusviptinguna í október.
Heildaryfirlit yfir eftirlitsheimsóknir Matvælastofnunar fyrstu tíu mánuði ársins 2025
Rétt er að taka fram að mjög lágt hlutfall eftirlitsheimsókna Matvælastofnunar enda með stjórnvaldsaðgerðum. Hér fyrir neðan má til glöggvunar finna upplýsingar um fjölda eftirlitsheimsókna janúar – október 2025:
Sláturhúsin skera sig nokkuð úr í þessum samanburði en Matvælastofnun er með daglegt eftirlit í þeim. Aðrar heimsóknir samanstanda af reglubundnu eftirliti, ábendingum og eftirfylgniheimsóknum.