Stjórnvaldsákvarðanir Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum í maí, júní og júlí 2025
Dagsektir ákveðnar
Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag voru lagðar á bónda í suðausturumdæmi til að knýja á úrbótum. Örmerkingum hrossa, hunda og katta á bænum var ábótavant og hjarðbók fyrir sauðfé óuppfærð. Sjúkdóma- og lyfjaskráningar fyrir sauðfé og hross voru einnig ófullnægjandi og almenn meðferð og umhirða hunda á bænum ekki í lagi.
Stjórnvaldssekt ákvörðuð
Stjórnvaldssekt að upphæð 330.000 kr. var lögð á einstakling í suðvesturumdæmi sem notaði hengingaraðferð við tamningu á folaldi.
Dagsektir lagðar á rekstraraðila hestaleigu
Matvælastofnun stöðvaði rekstur hestaleigu í suðausturumdæmi í apríl vegna brota á dýravelferð en rekstraraðilinn hélt áfram rekstrinum. Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag voru lagðar á hann til að knýja á um lokun hestaleigunnar og bæta úr velferð hrossanna.
Vörslusvipting á köttum
Kattareigandi í suðvesturumdæmi sviptur tveimur köttum vegna ófullnægjandi dýravelferðar.
Vanrækt að kalla til dýralækni eða aflífa kvígu
Við eftirlit hjá bónda í suðvesturumdæmi fannst fótbrotin kvíga í fjárhúshlöðu á bænum sem hafði verið brotin í 2-3 daga áður en eftirlitsmenn bar að garði. Ekki hafði verið kallaður til dýralæknir. Kvígan var aflífuð að kröfu MAST og lögð stjórnvaldssekt á bóndann að upphæð 210.000 kr. Einnig voru lagðar á hann dagsektir að upphæð 15.000 kr. á dag til að knýja á um bætta dýravelferð í búskapnum.
Vörslusvipting á köttum
Kattareigandi í suðvesturumdæmi hélt þrjá ketti í búri á svölum á heimili sínu við ófullnægjandi aðstæður. Vörslusvipting fór fram.
Kýr drapst í flutningi til sláturhúss
Bóndi í norðausturumdæmi lét flytja kú til sláturhúss á Akureyri fimm dögum eftir burð. Hún drapst á leiðinni. Það var mat stofnunarinnar að bóndanum hefði átt að vera ljóst að kýrin var ekki flutningshæf vegna einkenna sem hún sýndi. Lögð var stjórnvaldssekt að upphæð 260.000 kr. á bóndann.
Vanrækt að kalla til dýralækni eða aflífa kú
Við eftirlit hjá bónda í norðvesturumdæmi kom í ljós í fjósi mjög illa farin kýr. Vanrækt hafði verið að kalla til dýralækni eða aflífa skepnuna. Skepnan var aflífuð að kröfu MAST. Lögð var stjórnvaldssekt að upphæð 225.000 kr. á bóndann.
Vörslusvipting á hundi
Hundeigandi í norðausturumdæmi var sviptur umráðum hundsins en vanrækt hafði verið að fara með hann til dýralæknis sem bitnaði á velferð hans. Hundurinn var aflífaður að kröfu MAST.
Vörslusvipting á hundi og köttum
Við heimsókn lögreglu á heimili í suðvesturumdæmi kom í ljós að ástandið þar var ekki gæludýrum bjóðandi. Lögreglan fjarlægði dýrin í samráði við MAST. Formleg vörslusvipting fylgdi í kjölfarið.
Vörlsluvipting á hundi
Hundeigandi í norðausturumdæmi var sviptur vörslum dýrsins. Eigandinn hafði verið fjarverandi í fjóra daga án þess að sjá til þess að hundurinn fengi umönnun, fóður og vatn. Nágrannar brugðust óbeðnir við og sinntu hundinum en ástandið á heimilinu var metið óviðunandi.
Dagsektir ákvarðaðar
Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag lagðar á bónda í norðausturumdæmi til að knýja á um úrbætur á velferð sauðfjár og hrossa.