Starf eftirlitssérfræðings á sviði matvælaöryggis í Norðvesturumdæmi
Viltu standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf á sviði matvælaöryggis í Norðvesturumdæmi með starfsstöð á Vestfjörðum. Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall kemur vel til greina. Starfið heyrir undir héraðsdýralækni Norðvesturumdæmis.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér eftirlit með matvælavinnslum, svo sem mjólkurvinnslum, kjötvinnslum, fiskvinnslum og fiskiskipum. Að auki getur verið um að ræða eftirlit með fóðri, áburði og aukaafurðum dýra.
Starfið krefst ferðalaga um Norðvesturland.
Hæfniskröfur
- Menntun í matvælafræði, mjólkurtæknifræði, dýralækningum eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Haldbær þekking og reynsla af vinnu við vinnslu matvæla æskileg
- Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
- Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
- Þekking á HACCP aðferðafræðinni æskileg
- Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Vilji / hæfni til að starfa í teymi
- Góð framkoma og lipurð í samskiptum
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku
- Bílpróf er skilyrði
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gissur Kolbeinsson, sviðsstjóri vettvangseftirlits, á netfanginu gissur.kolbeinsson@mast.is eða í síma 530 4800.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur.
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2025. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.