Fara í efni

Staða varðandi fuglainflúensu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Engin ný tilfelli af fuglainflúensu hafa greinst í alifuglum frá því að sýking með skæðu afbrigði veirunnar (H5N5) greindist í einu kalkúnaeldishúsi 3. desember sl.

Eins og fram hefur komið skilgreindi Matvælastofnun svæði umhverfis viðkomandi bú og gefin voru fyrirmæli um sérstakar sóttvarnaráðstafanir á fuglabúum innan þess. Jafnframt hefur Matvælastofnun aukið eftirlit með flutningi fugla innan svæðisins og út af því. Sýni eru tekin úr fuglahópum sem fyrirhugað er að slátra og þeir ekki sendir til slátrunar fyrr en niðurstöður liggja fyrir og þær hafa reynst neikvæðar.

Að öllu óbreyttu standa vonir til að smátt og smátt verði hægt að létta takmarkanir og afnema þær að fullu fyrir áramót. Mjög brýnt er þó að vera vel á verði og bregðast skjótt við ef vart verður við veikindi eða óeðlilega mikinn dauða í fuglahópum. Veiran er til staðar í villtum fuglum og því alltaf hætta á að hún berist inn í fuglahús.

Upplýsingar um fuglainflúensu, forvarnir og viðbrögð við jákvæðum greiningum má finna á heimasíðu Matvælastofnunar. Þar er líka að finna mælaborð með upplýsingum um sýnatökur úr villtum fuglum og niðurstöðum rannsókna.

Eins og áður er fólk beðið að tilkynna um veika eða dauða fugla, með því að skrá það í ábendingarkerfi á heimasíðu Matvælastofnunar, helst með myndum og hnitum staðarins. Fuglaeigendur eru beðnir um að tilkynna tafarlaust um veikindi eða óeðlilegan dauða beint til sérgreinadýralæknis alifugla í síma 8617419.

Matvælastofnun minnir enn á ný á að fólki stafar ekki hætta af neyslu fuglakjöts. Aftur á móti getur fólk sem er í náinni snertingu við sýkta fugla smitast af veirunni og það fólk þarf að gæta ýtrustu smitvarna. Upplýsingar um fuglainflúensu í fólki er að finna á heimasíðu sóttvarnalæknis.

Ítarefni

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglainflúensu

Frétt Matvælastofnunar um fuglainflúensu 3. desember

Frétt Matvælastofnunar um fuglainflúensu 6. desember


Getum við bætt efni síðunnar?