Staða fuglainflúensusmits
Töluvert hefur dregið úr tilkynningum til Matvælastofnunar um dauða villta fugla. Þetta túlkar stofnunin sem vísbendingu um að dregið hafi úr fuglainflúensusmiti. Aftur á móti er ljóst að það er ekki úr sögunni, þar sem enn greinist stöku fugl með skæða fuglainflúensu.
Matvælastofnun vill minna á að enn eru í gildi fyrirmæli ráðherra um varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglainflúensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi. Þótt dregið hafi úr tilfellum í villtum fuglum telur Matvælastofnun ekki rétt að draga úr þessum ráðstöfunum því nú eru farfuglarnir að flykkjast til landsins og þeir koma frá slóðum þar sem töluvert hefur verið um sýkingar í fuglum. Það er því talin nokkuð mikil hætta á að nýjar veirur berist með þeim. Fuglaeigendur þurfa því enn að gæta ítrustu sóttvarna og fylgjast vel með fuglunum sínum.
Frá því í haust þegar afbrigðið H5N5 greindist fyrst hér á landi hafa 11 tegundir villtra fugla greinst með sýkingu og tilkynnt hefur verið um 333 dauða fugla og 78 veika fugla af þessum tegundum. Á sama tíma hafa 14 sýni verið tekin úr villtum spendýrum, 11 sýni úr köttum, eitt úr hundi og tvö úr nautgripum. Veiran hefur greinst í þremur köttum, einum ref og einum mink. Þessar tölur og upplýsingar um staðsetningu er hægt að sjá á mælaborði um fuglainflúensu á heimasíðu Matvælastofnunar.
Matvælastofnun hvetur fólk til að vera áfram iðið við að tilkynna stofnuninni um dauða fugla og dauð villt spendýr sem það finnur, ef ástæða dauða er ekki augljós. Það er gert með því að smella á „ábendingar og fyrirspurnir“ á forsíðu www.mast.is. Mikilvægt er að lýsa staðsetningu vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með. Tilkynningarnar eru þýðingarmikill liður í vöktun á stöðunni. Allar ábendingar eru skráðar og stofnunin tekur svo ákvörðun um hvort ástæða sé til að taka sýni eða ekki. Meðal þess sem haft er til hliðsjónar við þá ákvörðun er hvar dýrið er staðsett og um hvaða tegund er að ræða.
Gæludýraeigendur þurfa að meta út frá eigin aðstæðum hvort þeir leyfa dýrum sínum að vera frjáls úti. Eins og staðan er núna virðist smithætta ekki vera mikil en ekki er hægt að útiloka að dýrin sýkist ef þau eru í náinni snertingu við veika eða dauða fugla. En eins og sjá má af tölunum hér að ofan er tíðni sýkinga í spendýrum lág.
Að lokum vill Matvælastofnun minna á að samkvæmt lögum um velferð dýra er sveitarfélögum skylt að sjá til þess að villtum dýrum, sem ætla má að séu sjúk, særð, í sjálfheldu eða bjargarlaus að öðru leyti, sé komið til bjargar. Því þarf ávallt til viðbótar við að tilkynna til Matvælastofnunar einnig að tilkynna um veik eða slösuð villt dýr til viðkomandi sveitarfélags eða lögreglu utan opnunartíma þeirra, svo hægt sé að koma þeim til hjálpar eða lina þjáningar.