Slátrun sauðfjár í íslenskum sláturhúsum
Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun koma á framfæri upplýsingum um það ferli sem fylgt er við slátrun á sauðfé í kjölfar nýlegrar og misvísandi umfjöllunar í einum fjölmiðli. Mikilvægt er að réttar upplýsingar komi fram um það ferli sem er fylgt við slátrun á Íslandi, sem tryggir bæði dýravelferð og fylgni við lög. Hér á eftir fer lýsing á opinberu verklagi við aflífun dýra í íslenskum sláturhúsum.
Við slátrun sauðfjár á Íslandi fer aflífun fram í tveimur skrefum. Fyrst er dýrið svipt meðvitund með rafstraumi sem veldur algeru meðvitundarleysi. Í beinu framhaldi, meðan dýrið er meðvitundarlaust, fer fram blóðgun, sem er seinna skrefið og hin eiginlega aflífun. Blóðgun fer fram með hálsskurði þar sem rofnar eru slagæðar í hálsi, sem tryggir áframhaldandi meðvitundarleysi og skjóta, örugga og sársaukalausa aflífun dýrsins. Aflífun er framkvæmd af sérþjálfuðu starfsfólki sem hefur þurft að standast hæfnispróf yfirvalda svo tryggt sé að dýrið sé meðvitundarlaust þegar blóðgun á sér stað.
Þessi aðferð er samkvæmt löggjöf um vernd dýra við aflífun og er samþykkt og notuð innan Evrópusambandsins. Á Íslandi er skylt að deyfa öll dýr áður en aflífun fer fram og allt sauðfé er aflífað samkvæmt þessari viðurkenndu sannreyndu aðferð í öllum sláturhúsum landsins. Þegar „halal-slátrun“ fer fram í sláturhúsi á Íslandi er nákvæmlega þessari sömu aðferð fylgt en við bætist að við slátrunina er farið með ákveðin ritningarorð á meðan blóðgað er. Samkvæmt skilgreiningu á „halal-slátrun“ uppfyllir þessi aðferð þau skilyrði.
Hjá stofnuninni er bæði starfandi sérgreinadýralæknir sem fylgist með og leiðbeinir um velferð dýra í sláturhúsum og eftirlitsdýralæknar sem eru til staðar við hverja einustu slátrun á landinu alla daga sem slátrað er og sinna þar daglegu eftirliti með hollustuháttum og dýravelferð. Fylgst er með dag hvern hvernig aflífun fer fram og að skilyrði um velferð dýranna sé fullnægjandi þ.m.t. meðferð á þeim í öllu ferlinu og svipting meðvitundar við aflífun. Ef upp koma brestir eru þeir ávallt litnir mjög alvarlegum augum og umsvifalaust krafist úrbóta.