Skýrsla starfshóps um varnir gegn sýklalyfjaónæmi
Skýrsla starfshóps um tillögur um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hér á landi hefur verið birt á vef velferðarráðuneytisins. Niðurstöður nefndarinnar verða kynntar á ráðstefnu Matvælastofnunar og Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um sýklalyfjaónæmi sem haldin er í dag.
Sýklalyfjaónæmi er ein helsta ógn sem steðjar að lýðheilsu, matvælaöryggi og framþróun í heiminum í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Dauðsföllum af völdum fjölónæmra baktería fer fjölgandi. Áætlað er að sýkingar af völdum sýklalyfjaónæmra baktería valdi nú þegar um 700.000 dauðsföllum í heiminum á hverju ári og að þeim fjölgi í allt að 10 milljónir á ári árið 2050 verði ekkert að gert.
Í skýrslu starfshópsins er gerð grein fyrir helstu áhættuþáttum sem stuðla að útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og tilgreindar aðgerðir í tíu liðum sem hópurinn leggur til svo koma megi í veg fyrir frekari útbreiðslu þess.
Starfshópurinn var skipaður af heilbrigðisráðherra og í honum áttu sæti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sem var formaður hópsins, Sigurbjörg Daðadóttir yfirdýralæknir og Vala Friðriksdóttir deildarstjóri Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum.
Í dag kl. 13.30 - 16:30 verður haldin opin ráðstefna um baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi í fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík þar sem niðurstöður starfshópsins verða m.a. til umfjöllunar.