Fara í efni

Skimun fyrir sjúkdómsvaldandi örverum í kjöti á markaði 2019

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Skimun fyrir sjúkdómsvaldandi örverum í kjöti á íslenskum markaði sýnir að örverufræðilegt ástand er almennt gott hvað varðar salmonellu og kampýlóbakter. Shigatoxín myndandi E. coli (STEC) greinist í kjöti af íslensku sauðfé og er það vísbending um að STEC sé hluti af náttúrulegri flóru sauðfjár. Eftirlit með salmonellu og kampýlóbakter á fyrri stigum matvælakeðjunnar er öflugt hér á landi. 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Matvælastofnun, í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, skipulögðu sýnatökur árið 2019 á algengustu sjúkdómsvaldandi örverum kjöti á markaði. Fimm stærstu heilbrigðiseftirlitsvæðin á landinu sáu um sýnatökuna. 

Sýni voru tekin af innlendu og erlendu kjöti í matvöruverslunum á fjölmennustu svæðum landsins. Tilgangur sýnatökunnar var að skima fyrir  sjúkdómsvaldandi örverum í afurðum þegar neytandinn fær þær í hendur og fór því sýnatakan fram í smásöluverslunum. 

Í ófrosnu kjúklingakjöti greindist ekki salmonella. Kampýlobakter greindist í litlu magni í 3 sýnum af frosnu kjúklingakjöti. Salmonella greindist ekki nautgripakjöti. Salmonella (Salmonella Kedougou) greindist í einu sýni  af innlendu svínakjöti.  Dreifing var stöðvuð og kjötið tekið af markaði og innkallað frá neytendum. Í 22% sýna af kjöti af sauðfé greindist meinvirknigen STEC en þar af ræktaðist E. coli sem bar meinvirknigen í 14% sýnanna. Fjallað er nánar um niðurstöður í skýrslu um skimun fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríum í kjöti á markaði 2019.

Samsvarandi skimun var gerð hér á landi í fyrsta sinn árið 2018 og hafa stjórnvöld ákveðið að halda áfram aukinni vöktun á sjúkdómsvaldandi örverum í fersku kjöti á markaði a.m.k þetta ár. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?