Fara í efni

Skil á haustskýrslum búfjár

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Skilafrestur á haustskýrslum er nú útrunninn og vill Matvælastofnun upplýsa þá sem enn hafa ekki skilað skýrslum að starfsmenn Matvælastofnunar munu frá og með 15. desember n.k. hefjast handa við heimsóknir til þeirra sem ekki hafa skilað skýrslum.

Eins og kveðið er á um í lögum verða allar heimsóknir vegna vanskila á haustskýrslum á kostnað viðkomandi búfjáreiganda. Því eru þeir sem enn hafa ekki lokið skilum hvattir til að gera slíkt nú þegar og forðast þannig óþarfa útgjöld.

Þeim sem þegar hafa gengið frá skráningum á haustskýrslum sínum eru þökkuð góð viðbrögð. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?