Fara í efni

Skil á haustskýrslum árið 2017

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningar haustskýrslna í Bústofni (www.bustofn.is). Í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013 skulu umráðamenn búfjár árlega skila inn haustskýrslu fyrir 20. nóvember n.k. um búfjáreign, fóður og landstærðir.

Líkt og áður birtast upplýsingar úr hjarðbókum búfjáreigenda. Unnið er að því að tengja saman upplýsingar í WorldFeng og Bústofn svo hægt verði að klára haustskýrsluskil í WorldFeng. Mun sú nýbreytni verða auglýst þegar opnað verður fyrir þennan möguleika.

Allir búfjáreigendur geta með auðveldum hætti gengið frá haustskýrslu í Bústofni. Aðgangur að Bústofni fæst með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli.

Þeir sem ekki hafa tök á því að skila sjálfir í Bústofn stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, fyrir þá þjónustu er innheimt samkvæmt gjaldskrá RML.

Ítarefni

This is a reminder that your autumn livestock report is now accessible on www.bustofn.is. Deadline for individuals to file their autumn report is November 20th 2017.


Getum við bætt efni síðunnar?