Fara í efni

Samningur um stuðningsgreiðslur við dýralæknaþjónustu á Austurlandi er laus til umsóknar

Matvælastofnun tilkynnir hér með að samningur um stuðningsgreiðslur við dýralæknaþjónustu á Austurlandi er laus til umsóknar. Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralækni til að taka að sér almenna dýralækna­þjónustu og bráðaþjónustu á svæði 8 (Sveitarfélagið Hornafjörður og Djúpavogshreppur (Djúpivogur og suður af honum). Samningurinn er laus þegar í stað, eða eftir samkomulagi í hluta eða fulla stöðu.

Markmiðið með þjónustusamning í samræmi við 13. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og reglugerð nr. 405/2020 er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti.

Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr á Austurlandi og að taka að sér tiltekin störf fyrir Matvælastofnun. Gerðir verða tveir samningar, annars vegar þjónustu­samningur og hins vegar verkkaupasamningur, hvoru tveggja eru verktakasamningar við Matvæla­stofnun. Almennri dýralæknaþjónustu tilheyrir einnig að standa vaktir kvöld, nætur og helgidaga, en að tilteknu hámarki sbr. 4. mgr. 9. gr. laga nr. 66/1998.

Samningur er gerður til og með 30. apríl 2030. Staðaruppbót sem greidd er samkvæmt þjónustusamningi er í formi mánaðarlegrar þóknunar. Þóknun fyrir opinber eftirlitsverkefni unnin samkvæmt verkkaupasamningi við Matvælastofnun er tímagjald.

Dýralæknir sem gerir þjónustusamning skal vera með eða hafa aðgang að starfsstöð innan þjónustusvæðisins til að tryggja eftir föngum að dýraeigendur fái þjónustu innan hæfilegs tíma. Æskilegt er að umsækjandi hafi góða þekkingu á staðháttum og sjúkdómastöðu á viðkomandi svæði. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu. Gert er ráð fyrir nánu samstarfi dýralækna sem þiggja staðaruppbætur á svæðinu.

Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna veitir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir. Hægt er að senda tölvupóst á thora.jonasdottir@mast.is eða hringja í síma 530 4800. Jafnframt er hægt að óska eftir því að fá drög að þjónustusamningi og verkkaupasamningi send til kynningar.

Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið mast@mast.is merktar “Dýralæknir – þjónustusvæði 8”. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum, ef við á, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og hvernig samstarfi umsækjandi hyggst koma á við aðra þjónustudýralækna á svæðinu ef áætlun er um slíkt.


Getum við bætt efni síðunnar?