Fara í efni

Salmonella í nagdóti fyrir gæludýr

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við eftirlit Landbúnaðarstofnunar með gæludýrafóðri hefur salmonella greinst í óinnpökkuðum svínseyrum og  nagbeinum úr nautgripum, sem voru til sölu í gæludýraversluninni Tokyo, Hjallabraut 4, Hafnarfirði. Nagdótið var innflutt og frá sama framleiðanda og svínanagbein sem salmonella greindist í snemma í október sl. Í fullu samráði við innflytjanda hefur nagdótið nú verið tekið úr sölu og verður fargað. Salmonella getur valdið sýkingum í dýrum og í fólki, en ekki hefur orðið vart sýkinga sem raktar hafa  verið til þessa nagdóts.

Gæludýraeigendur sem kunna að hafa undir höndum umrædd svínseyru og nagbein eru hvattir til að skila þeim í verslunina Tokyo eða farga þeim með öruggum hætti.

Ekki greindist salmonella í öðrum sýnum sem tekin voru til örverugreiningar í ofangreindri verslun né hjá öðrum innflytjendum.

Nánari upplýsingar:
Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvæla- og umhverfissviðs Landbúnaðar-stofnunar, í síma 530 4800 eða 862 9002
 


Getum við bætt efni síðunnar?