Salmonella á kúabúi
Salmonella greindist í sýnum sem tekin voru í síðustu viku á búinu Fellshlíð í Eyjafirði. Ástæða sýnatökunnar var að einstaklingur sem tengist búinu hafði greinst með salmonellusýkingu og á búinu voru gripir með sjúkdómseinkenni, m.a. blóðuga skitu.
Matvælastofnun hefur gefið fyrirmæli um ráðstafanir til að hindra smitdreifingu frá búinu. Þær fela m.a. í sér að bannað er að flytja lifandi dýr út af búinu án leyfis héraðsdýralæknis, þjónustuaðilar skulu klæðast einnota hlífðarfatnaði eða fatnaði búsins, fóðurbíll og mjólkurbíll skulu fara á búið í lok dags, gripir skulu aðeins sendir til slátrunar að undangenginni sýnatöku og neikvæðri niðurstöðu rannsóknar, búfjáráburð má aðeins nota að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og hræjum skal fargað með öruggum hætti.
Það skal tekið fram að engin hætta stafar af neyslu mjólkur frá búinu eftir gerilsneyðingu.
Að svo stöddu er ekki vitað hvernig smitið hefur borist inn á búið en Matvælastofnun vinnur að öflun upplýsinga. Jafnframt undirbýr stofnunin nánari sýnatökur og rannsóknir til að kortleggja umfang smitsins og mögulegar smitleiðir.
Bændur í nágrenni búsins eru beðnir um að hafa strax samband við dýralækni eða Matvælastofnun ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni í gripum sem geta bent til salmonellusýkingar. Algengustu einkenni eru: minni átlyst, fall í nyt, hiti og niðurgangur sem oft er illa lyktandi og blóðugur.
Matvælastofnun mun leiðbeina bændum á búinu sem sýkingin greindist á, um þrif og sótthreinsun. Búið verður síðan undir eftirliti stofnunarinnar og sýni verða tekin reglubundið næstu mánuði eða þar til öruggt getur talist að smitið hafi verið upprætt.
Salmonella hefur mjög sjaldan greinst í nautgripum hér í landi. Það er til mikils að vinna að koma í veg fyrir salmonellusýkingar því mjög vandasamt og tímafrekt getur verið að útrýma smitinu.