Fara í efni

Sáðvara fyrir lífræna ræktun

Matvælastofnun hvetur bændur með lífræna vottun til að vera tímanlega í að afla sér fræja og sáðvöru fyrir sumarið. Takmarkað framboð er á vottuðum lífrænum fræjum og sáðvöru sem henta á Íslandi og er helst að leita til þeirra söluaðila sem eru sjálfir með vottun.

Ef ekki næst að útvega fræ eða sáðvöru með lífræna vottun, er heimild til undanþágu frá kröfunni um vottuð lífræn fræ og sáðvöru í reglugerð um lífræna framleiðslu. Sækja má um undanþágu til Matvælastofnunar í gegnum þjónustugátt MAST og valið er umsóknareyðublaðið nr. 4.40 Umsókn um notkun á hefðbundnu fræi eða útsæði til lífrænnar ræktunar. Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting á að fræið sem ætlunin er að nota sé ekki meðhöndlað með efnum eða hjúpað með tilbúnum áburði.

Alltaf skal bíða með sáningu þar til undanþága hefur fengist.

Nánari upplýsingar:


Getum við bætt efni síðunnar?