Fara í efni

Reglur um útgáfu heilbrigðisvottorða með búfjárafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þann 1. mars 2015 taka gildi nýjar reglur Matvælastofnunar um útgáfu heilbrigðisvottorða með sendingum búfjárafurða til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þessum reglum er ætlað að skipuleggja vinnu við eftirlit og útgáfu vottorða. Tilgangur reglnanna er að gera útgáfuna skilvirka og í samræmi við gildandi löggjöf og alþjóðareglur.

Reglur um útgáfu heilbrigðisvottorða:

  1. Heilbrigðisvottorð skulu að gefin út áður en sending fer frá Íslandi. 
  2. Opinbert eftirlit með sendingu skal framkvæmt af Matvælastofnun áður en vottorð er gefið út. Fyrir hverja sendingu skal útflytjandi fylla út hleðslustaðfestingu og senda ásamt fylgigögnum til héraðsdýralæknis viðeigandi umdæmis.
  3. Umsækjandi heilbrigðisvottorðs fyllir út viðeigandi vottorð og sendir rafrænt til Inn- og útflutningsskrifstofu Matvælastofnunar á utflutningur@mast.is. Afgreiðslutími heilbrigðisvottorða er á virkum dögum og skal vera a.m.k. 24 klst. Umsóknir sem berast fyrir hádegi kl. 8-12 verða afgreiddar kl. 8-12 daginn eftir. Umsóknir sem koma inn kl. 12-16 verða afgreiddar á tímabilinu kl. 13-16 daginn eftir. Styttri afgreiðslutími er mögulegur fyrir ferskar afurðir.
  4. Sendandi (Consignor) í heilbrigðisvottorði skal vera með kennitölu á Íslandi. Aðili með kennitölu á Íslandi getur verið skráður sendandi í heilbrigðisvottorði fyrir hönd erlendra aðila.
  5. Umsækjandi fær afhent eitt frumrit af vottorði og eitt afrit. Eitt afrit er geymt hjá Matvælastofnun. Hægt er að óska eftir fleiri afritum/skönnuðum afritum gegn sérstöku gjaldi
  6. Tilbúin vottorð verða sett í móttöku á skrifstofu inn- og útflutnings að Stórhöfða 23 í Reykjavík, þar sem hægt verður að nálgast þau eða fá þau send í almennum pósti skv. beiðni.
  7. Kostnaður vegna ofangreinds, þ.m.t. eftirlit með hleðslu sendingar og útgáfa vottorðs greiðist af útflytjanda.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?