Fara í efni

Óvissustigi vegna fuglainflúensu aflétt

Engar vísbendingar eru um að fuglainflúensa hafi borist með farfuglum til landsins í vor og smit í villtum fuglum með skæðu afbrigði H5N5 virðist hafa fjarað út. Því er óvissustigi vegna fuglainflúensu aflétt. Litlar líkur eru á smiti í villtum fuglum.

Það sem af er ársins, hafa sýni verið rannsökuð úr 42 fuglum af 16 fuglategundum sem fundust veikir eða dauðir víðsvegar á landinu. Öll sýnin voru neikvæð. Því eru taldar litlar líkur á fuglainflúensu í villtum fuglum um þessar mundir. Þó er mikilvægt að halda áfram vöktun nú í sumar þegar ungfuglar komast á legg, sem geta verið næmari fyrir sýkingu. Ekki er heldur útilokað að smit berist til landsins í haust með farfuglum sem koma frá varpstöðvum sínum á norðlægari slóðum.

Matvælastofnun ítrekar beiðni til almennings um að tilkynna til stofnunarinnar um fund á veikum eða dauðum villtum fuglum. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530 4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is. Æskilegt er að fá myndir og upplýsingar um fuglategund, fjölda fugla og fundarstað með hnitum.

Allir sem halda alifugla og aðra fugla skulu gæta smitvarna, því smit getur ávallt leynst í umhverfi fuglahúsa.

Ítarefni

 Upplýsingasíða MAST um fuglainflúensu


Getum við bætt efni síðunnar?