Fara í efni

Óskum gæludýrum gleðilegra jóla

Góð rútína, réttur matur og jafnvægi milli hreyfingar og hvíldar gerir jólahátíðina gleðilega, bæði fyrir dýr og menn.

Jólahátíðin er tími gleði og samveru, en fyrir gæludýrin okkar getur þessi tími verið áskorun. Hefðbundið lífsmunstur breytist oft mikið, meira er um heimsóknir og mataræði mikið breytt, sem getur valdið meiri vandamálum en gleði fyrir ferfætlingana okkar.

Hundar eru einstök vanadýr og miklar breytingar geta valdið streitu. Yfir hátíðirnar er mikilvægt að tryggja áfram hefðbundna hreyfingu og nauðsynlega hvíld. Íhugið hvort ekki sé stundum betra fyrir hundinn að hvílast frekar en að vera með í öllum jólaboðunum.

Hættur fyrir ferfætlinga og fiðraða heimilismeðlimi geta líka leynst víða, t.d. jólaseríur, skreytingar með kertum og blómum, jólamatur og sælgæti. Þótt við sjáum ekki að pakki sem liggur fallega skreyttur undir jólatrénu innihaldi konfekt, þá er nokkuð víst að hundur heimilisins viti nákvæmlega hvað er að finna í pakkanum og taki sér það bessaleyfi að opna þegar enginn sér til. Rafhlöður og seglar eru mikið í umferð á jólum og þessir hlutir geta verið dýrunum einstaklega hættulegir ef þau gleypa þá.

Gott er að undirbúa hátíðirnar með því að vista símanúmer nálægs vakthafandi dýralækni. Upplýsingar um vakthafandi dýralækna.

Hlutir sem geta reynst gæludýrum varasamir:

Hefðbundinn jólamatur

Oft langar mann að gefa t.d. hundinum eitthvað sérstaklega gott um jólin, enda erum við heldur betur að gera vel við okkur í mat. Hversu erfitt er líka að standast biðjandi augu loðboltans við jólaborðið? Margir hundar eru mjög viðkvæmir fyrir miklum breytingum í matarræði. En ef þú vilt gefa hundinum eitthvað auka gott, forðastu þá að gefa saltan, feitan eða mjög kryddaðan mat. Það endar oftar en ekki með niðurgangi og/eða uppköstum og í versta falli gæti dýrið endað hjá dýralækninum, sem er örugglega ekki staðurinn sem fólk langar að eyða hátíðisdögunum á.

Annar varasamur matur

Matur sem er varasamur fyrir gæludýrin er oft óvanalega aðgengilegur á jólum. Súkkulaði, laukur, rúsínur, avokado og vínber eru matvæli sem geta verið hættuleg dýrunum þínum. Skörp bein, svo sem fuglabein eða lambabein, geta stungist í gegnum meltingarveginn og önnur bein geta valdið stíflu. Sjá nánar um varasaman mat fyrir gæludýr

Jólatré

Flest tré eru ekki mjög eitruð en geta samt valdið niðurgangi og uppköstum ef þau eru étin. Nálarnar sjálfar geta líka valdið ertingu, stungist í slímhúð og jafnvel í þófa. Köttum finnst oft gaman að fara á jólaskrautsveiðar og geta lent í því að velta trjánum ef þau eru ekki vel skorðuð. Ekki er heldur víst að glerkúlur lifi slíkt fall af og glerbrot geta valdið skaða.

Rafhlöður

Aldrei er jafn mikið af rafhlöðum í umferð eins og á jólunum, í alls konar dóti. Rafhlöður eru gæludýrum mjög hættulegar ef þær eru gleyptar. Þær geta fljótt valdið vefjadauða vegna sýru sem getur lekið út eða rafspennu í vef og mögulega þungmálmaeitrun. Sérstaklega eru flögurafhlöður mjög skaðlegar þar sem þær geta valdið vefjaskaða á innan við 15-30 mínútum eftir inntöku. Ef þig grunar að gæludýrið þitt hafi gleypt rafhlöðu, hafðu umsvifalaust samband við vakthafandi dýralækni. Ef dýr gleypir rafhlöður er um að ræða neyðartilfelli sem þarf að bregðast við strax og ekki skal bíða til næsta dags.

Seglar

Sérstaklega þarf að huga að því á jólum að algengt er að nota segla á alls kyns kössum til að halda lokinu aftur. Seglarnir geta verið mjög öflugir miðað við stærð. Ef hundur nagar slíkan pappakassa þá getur hann gleypt seglana. Ef slíkt gerist og seglarnir festast saman í gegnum þarma getur lífshættulegt ástand skapast. Hafið strax samband við dýralækni ef grunur er um að gæludýr hafi gleypt segla. Um er að ræða neyðartilfelli sem þarf að bregðast við strax og ekki skal bíða til næsta dags.

Skreytingar

Bæði hundar og kettir geta tekið upp á því að éta gjafabönd og bandskreytingar. Ef böndin festast á leið sinni í gegnum meltinguna geta þau skapað mikla hættu fyrir dýrið. Stundum festist hluti af spottanum utan um tungu þó hluti af honum gangi niður. Ef spotti er kominn í maga eða þarm og gengur svo aftur úr dýri eða upp úr því er mjög mikilvægt að toga alls ekki í spottann þar sem það getur skorið þarmana eða vélindað eins og hnífur. Leitið strax til dýralæknis.

Blóma- og kertaskreytingar geta verið varasamar. Gæludýr vara sig oft ekki á kertaljósum og eiga það til að brenna sig og kveikja í feldinum ef þau fara of nálægt. Ófáir kettir hafa kveikt í veiðihárunum í þeirri tilraun að þefa af kertunum. Forðist að setja logandi ljós þar sem dýrið kemst að því. Ef dýr fá heitt kertavax framan í sig getur þurft að skoða hvort það hafi brennt eða skaðað hornhimnu augnanna. Athugið að ef dýrið pírir augu getur það verið einkenni um skaða. Jólastjörnur, mistilteinn og önnur jólablóm eru vægt eitruð ef þau eru étin og geta valdið slefi, uppköstum, niðurgangi.

Bæði hundar og kettir geta tekið upp á því að bíta í jólaseríur og geta þá fengið óþægilegt rafstuð.

(Mynd með frétt: ©Oleg Gapeenko)


Getum við bætt efni síðunnar?