Fara í efni

Þörungaeitur í kræklingi í Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varaði við tínslu á kræklingi í Hvalfirði fyrir ríflega viku síðan vegna hugsanlegrar eitrunar í kræklingi í firðinum. Matvælastofnun sendi sýni af kræklingi til greiningar á þörungaeitri í síðustu viku og reyndist viðvörunin vera á rökum reist þar sem eiturmagn mælist vera 440µg/kg af DSP eitri sem er langt yfir viðmiðunarmörkum, en þau eru 160µg/kg.

Hvalfjörður er því lokaður til skelfisksuppskeru og er fólk sterklega varað við að neyta kræklings úr firðinum eins og staðan er. Stofnunin mun áfram fylgjast með stöðu mála og láta vita þegar óhætt verður að neyta kræklings úr firðinum.

Af þeim svæðum sem Matvælastofnun vaktar m.t.t. þörungaeiturs er Hvalfjörður eina svæðið sem er lokað vegna eitrunar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?