Fara í efni

Ómerktir ofnæmisvaldar í grillkryddi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um vanmerkt krydd á markaði í gegnum Hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF). Um er að ræða grillkrydd frá Danmörku sem inniheldur hnetur (jarðhnetur) og sellerí án þess að það komi fram á umbúðum. Kryddið getur valdið neytendum með ofnæmi fyrir hnetum eða selleríi heilsutjóni og hefur það verið innkallað af markaði, í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Varan er hættulaus öðrum neytendum. 

Innköllunin einskorðast við eftirfarandi vöru:

  • Vörumerki: Anna and Clara´s
  • Vöruheiti: Steak Spice
  • Strikanúmer: 5711812000403
  • Best fyrir: Allar dagsetningar
  • Nettómagn: 70 g.
  • Innflytjandi: Kiosk, Drápuhlíð 44, 105 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Söstrene Grene í Kringlunni og Smáralind

Innköllun á grillkryddi

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi fyrir sellerí eða jarðhnetum eru beðnir að neyta hennar ekki og farga henni eða skila til Söstrene Grene gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar fást hjá Söstrene Grene í síma 698 9212 eða í gegnum netfangið kiosk@simnet.is.

Ítarefni

Frétt uppfærð 01.06.17 kl. 11:15


Getum við bætt efni síðunnar?