Fara í efni

Ómerkt mjólk, sellerí og soja í ýsu í raspi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk, sellerí og/eða soja við neyslu á ýsu í raspi frá fyrirtækinu FBO ehf. (Fiskbúðin okkar) með síðasta notkunardag 19.04.20 og 20.04.20. Við eftirlit Matvælastofnunar kom í ljós að varan inniheldur þessa ofnæmisvalda án þess að það komi fram á umbúðum. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna.  

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Ýsa í raspi
  • Framleiðandi: FBO ehf. (Fiskbúðin okkar), Eyjaslóð 7, 101 Reykjavík
  • Framleiðsludagsetningar: 14.04.20 og 15.04.20
  • Framleiðslumagn: 360 kg báða dagana
  • Síðasti notkunardagur: 19.04.20 og 20.04.20
  • Dreifingaraðilar: Bónus verslanir á höfuðborgarsvæðinu

Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir mjólkursykri, soja og/eða sellerí geta skilað vörunni til FBO ehf, Eyjaslóð 7, 101 Reykjavík eða til Bónusverslana gegn endurgjaldi.

Varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir ofangreindum ofnæmisvöldum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?